Hvítasunnuferð á Þverártindsegg

Elvar Jónsson skrifaði þann 26. maí 2010 10:18

Um Hvítasunnuhelgina ákváðu nokkrir félagar úr HSG að toppa Þverártindsegg í Kálfafellsdal í Suðurveit. Þverártindsegg rís hæst fjalla vestan Kálfafellsdal og er 1554 m. Uppgönguleiðin frá Kálfafellsdal er nokkuð brött eða í kaldhæðni sagt ,,ein stór aflíðandi brekka" og var þessi tindur tilvalin áskorun eftir góðan BootCamp- og fjallabröltsvetur með tilheyrandi útköllum og æfingaferðum.

Haldið var inn í Skaftafell á föstudegi og á laugardeginum var tekið því rólega en á sunnudeginum var gangan sjálf. Klukkan 4:20 fagran Hvítasunnumorgun voru 9 vaskir félagar staddir, með stírurnar í augunum, fyrir framan uppgönguleiðina á Þverártindsegg. Það var smá þoka á ferð og því glitti rétt svo í toppinn, en veðrið var mjög stillt og gott. Við byrjuðum gönguna á því að labba í skriðum og grjóti upp verulega bratta brekku sem var að lágmarki í 45° halla. Við gengum upp úr þokunni og var það alveg mögnuð sýn enda akkúrat tíminn þegar sólarupprás átti sér stað. Eftir þessa brekku var komið að stuttu nestisstoppi en svo var haldið áfram, skellt sér í brodda og þverað yfir eina ísbrekku sem var í miklum hliðarhalla. Þegar við komumst svo loksins að jöklinum þá skiptum við okkur niður í línu og héldum áfram upp aflíðandi brekkur tindsins. Á einum stað þurftum við að fara yfir 1 m breiða sprungu og ákváðum við að velja aðra leið til þess að fara niður en ekki var stemmning fyrir að fara í kaffi hjá Kölska. Eftir sprunguhoppið að þá héldum við áfram göngunni í frábæru veðri og vorum komin á toppinn um 11 leytið öll ótrúlega sátt eftir frábæra uppgöngu. Við stoppuðum lengi á toppnum, gerðum heiðarlega tilraun til þess að taka hópmynd af okkur þar og misstum okkur í útsýninu en það sást vel til Esjufjalla og út Kálfafellsdalinn og var sjónin sögu ríkari.

Niðurleiðin gekk áfallalaust fyrir sig, í staðinn fyrir að fara aftur yfir sprunguna völdum við leið þar sem að við fórum niður smá ísvegg en svo röltum við rólega til baka sömu leið. Eins og áður sagði byrjuðum við gönguna í mikilli þoku en upp úr 8 leytið var sólin farin að skína og nutum við veðurblíðunnar sem setti punktinn yfir i-ið á þessa göngu. Þetta var frábær dagur sem að endaði í sundlauginni í Svínafelli og með grillveislu inni í Skaftafelli um kvöldið. Við héldum svo heim á leið á mánudeginum, vel útitekin og fersk eftir góða helgi í Öræfum. Rakel Ósk Snorradóttir nýliði 1

Utkall-F2-gulur-sv1-slys i fjallendi-undanfarar - F2>54 KK slasadur a Vifilfell

Eyþór Fannberg skrifaði þann 22. maí 2010 11:22

Rétt í þessu fóru tveir undanfara og tveir aðstoðarmenn af stað í útkall vegna einstaklings sem slasaðist við fjallgöngu í Vífilfelli.

Utkall-F1 raudur-sv1-slys i Esju-undanfarar

Eyþór Fannberg skrifaði þann 18. maí 2010 11:18

Undanfarar sveitarinnar voru boðaðir út vegna slys sem varð í Esjunni við Heljaregg. Fóru 4 menn í útkallið. Þyrla LHG hífði mannin upp og flutti á sjúkrahús. 

Fyrsta sumarnámskeið hjá hundaflokki

Björn Bergmann Þorvaldsson skrifaði þann 11. maí 2010 23:37

9 teymi úr hundaflokki HSG tóku þátt í fyrsta sumarnámskeiði Björgunarhundasveitar Íslands sem haldið var dagana 7. til 9. maí. Æft var á 2 svæðum við Mosfell í Árnessýslu, en gist var á gistiheimilinu Húsinu í Reykholti. Alls voru 15 hundateymi á námskeiðinu, en leiðbeinendur voru félagar HSG, þeir Ingimundur og Maurice. Heiðskýrt og sólríkt var alla dagana og gengu æfingar vel. Hundaflokkur HSG er fjölmennasti hundaflokkur Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Í flokknum eru nú 12 teymi, en í þeim hópi eru reyndustu hundateymi landsins. Teymi með A og B próf eru á útkallslista, en í flokknum eru nú 8 teymi á útkallslista í sumarleit og 10 teymi á útkallslista í snjóflóðaleit.

Útkall Gulur - Slasaður maður á Miðfellstindi

Björn Bergmann Þorvaldsson skrifaði þann 01. maí 2010 16:29

Undanfarar sveitarinnar voru kallaðar út kl. 16:29 ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar maður slasaðist illa á fæti á Miðfellstindi á Vatnajökli. Þyrlan fór með undanfara björgunarsveita af höfuðborgarsvæðinu austur og lenti á slysstað rétt eftir klukkan 18 og flutti manninn á sjúkrahús í Reykjavík.

1