
Aðalfundur HSG verður haldinn í Jötunheimum við Bæjarbraut laugardaginn 4. mars kl. 11.00. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf og undirritun eiðstafar ásamt dýrindis kaffi. Stjórn vill hvetja alla félaga, gamla sem unga, til að láta sjá sig á spennandi aðalfundi. Síðan um kvöldið verður árshátíð HSG haldin með pompi og prakt í Húnabúð og verður húsið opnað kl. 19. Allir að láta sjá sig þar. Skráning á innraneti.
Í gær, 26. febrúar, var tilkynnt um að jeppi hafði fallið í sprungu á Hofsjökli með tveimur mönnum innanborðs. Björgunarsveitir frá norðurlandi, suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út ásamt þyrlum frá varnarliðinu og frá danska varðskipinu Triton. Fyrstu björgunarmenn voru komnir á staðinn um kl. 19:30. Báðir jeppar sveitarinnar Garðar1 og Garðar 2 lögðu af stað úr Reykjavík með 6 undanfara og 4 bílstjóra, rétt eftir að sveitir af höfuðborgarsvæðinu höfðu verið kallaðar út , einnig var snjóbílinn klár en var settur í bið ásamt öðrum snjóbílum af höfuðborgarsvæðinu. Söfnunarsvæði fyrir undanfara var við þyrlupallinn við hálendismiðstöðina í Hrauneyjum og var áætlað að flytja búnað og mannskap með þyrlu upp á jökul. Til þess kom þó ekki þar sem ljóst var að nægur mannskapur var komin á vettvang , en um gríðarlega erfiða aðgerð var að ræða .. Alls tóku um 200 björgunarsveitarmenn þátt í aðgerðinni. Búið var að ná mönnunum upp rétt fyrir miðnætti og voru þeir fluttir með þyrlu varnarliðsins til Reykjavíkur. Bílarnir komu svo í bæinn um hálf tvö . Eins og fram hefur komið í fréttum þá lést annar þeirra sem í bílnum voru og hinn liggur nú þungt haldinn á spítala.
Bílaflokkur skellti sér í fínan túr nú um helgina . Upphaflega var áætlað að leggja af stað klukkan 08:00 á laugardagsmorgun en sökum innanbæjarleitar þá seinkaði brottför aðeins.. þess má geta að allir nema 2 sem fóru í ferðina voru í leitinni , það voru því þreyttir en ánægðir bílaflokksmenn sem lögðu af stað úr bænum um 10 leytið ... Stefnan var tekin á Arnarvatsheiðina og þaðan austur fyrir Langjökul .. síðar um daginn var svo stímað upp á jökulinn og þvert yfir hann og á Hveravelli , Þar voru fyrir nokkrar sveitir á höfuðborgarsvæðinu sem að við höfðum mælt okkur mót við .. það voru því 7 björgunarsveitar bílar sem höfðust við á Hveravöllum þessa nótt. Daginn eftir var tekin olía og og haldið áleiðis norður Eyfirðingaveg og að Ingólfsskála þar sem var stoppað í mat.. Þaðan var farið suður yfir Höfsjökul niður í setur , suður klakksleið í Leppistungur og þaðan í byggð í Tungudal .. Frábær ferð , og gaman að krúsa um fjöll með öðrum sveitum í kringum okkur .. Myndir úr ferðinni munu koma í vikunni
Rétt í þessu var leitin að manni á fimmtugsaldri að klárast. Útkallið barst um kl. 3:00 í nótt og fannst hann heill á húfi kringum kl. 8:00 í morgunn. Alls tóku 9 manns þátt í leitinni frá HSG, enn alls voru kringum 100 björgunarmenn sem tóku þátt í aðgerðinni.
Uppstillinganefnd hefur nú hafið störf og lýsir hér með eftir framboðum í embætti. Mörg spennandi verkefni eru í boði. Þar má helst nefna stjórn, birgðanefnd, skemmtinefnd, flugeldanefnd, útkallsnefnd o.fl. Áhugasamir eru beðnir að setja sig í samband við Bergþór í síma 895-2412, Evu Írisi í 822-3611 eða Evu Mjöll í 694-6911.
