
Hverjir eru eiginlega þessir nýliðar?
Það er ráð að lesa sér aðeins til um þann fjölbreytta hóp sem hóf þjálfun á síðasta ári og heldur áfram sem nýliðar 2 nú í vetur. Hér eru stutt viðtöl við tvö þeirra:
Aldur:
19 ára
Starf:
Nemi í Iðnaðarverkfræði í HÍ
Fjölskylda:
Bý hjá mömmu og pabba og á 2 yngri systur
Gæludýr:
ekkert
Hvers vegna ákvaðst þú að ganga til liðs við hjálparsveit?
Upphaflega kviknaði hugmyndin þegar ég labbaði Laugaveginn með skólanum (þá MH). Síðan var vinkona mín byrjuð í starfinu og dró okkur með sér.
Hvers vegna varð HSG fyrir valinu?
Ég er Garðbæingur. Og svo var vinkona mín byrjuð í sveitinni, lá allt saman mjög beint við.
Hvernig hefur starfið í vetur verið?
Bara ótrúlega gaman. Hefði bara viljað geta komist með í fleiri ferðir.
Við hverju bjóstu þegar þú hófst þjálfun?
Ég vissi í rauninni ekkert hvað ég var að fara útí.
Var það eitthvað frábrugðið því sem þú bjóst við?
Eins og ég segi..þá vissi ég ekkert hvernig þetta væri, þekkti starf Hjálparsveitanna mjög lítið.
Áttu ísbjarnarfælu?
Nei.. sem veldur mér miklum vonbrigðum að hafa ekki verið fyrst á lista til að fá slíkan útbúnað. Þekki hönnuðina jú vel ;)
Fyrir hverja telur þú starfið í hjálparsveitum vera?
Allt skemmtilegt fólk sem vill vera með öðru skemmtilegu fólki og finnst gaman að útivist.
Hvert er eftirminnilegasta atvikið frá sl. vetur?
Nýliðaprófið, hvað það var gott veður..og síðan ekkert svo gott. Það var frábær ferð og mjög góð æfing í rötun.
Hefurðu gert upp hug þinn, varðandi með hvaða flokk / -um þú myndir vilja starfa með?
Jú, ég held ég stefni á leitarflokk, þó það sé ekkert fullvíst enn.
Hver þykir þér vera helsti kosturinn við að starfa með HSG?
Hvað þetta er mátulega stór sveit, nógu lítil til að það er hægt að þekkja flesta virka meðlimi, en erum samt nógu stór til að halda uppi fjölbreyttu starfi.
Veistu hvar þú getur keypt ísbjarnarfælu?
Fæ ég þetta ekki beint frá framleiðanda?
Aldur:
41
Starf:
Skipaverkfræðingur, starfa við skoðanir og úttektir á skipum og úttektir á gæðakerfum í skipum og hjá skipafélögum. Er þar m.a. að taka út björgunarbúnað skipanna.
Fjölskylda:
Kona og 3 börn.
Gæludýr:
Konan.
Hvers vegna ákvaðst þú að ganga til liðs við hjálparsveit?
Eftir leitina að Þjóðverjunum í Vatnajökli í fyrra fór ég að kynna mér starf hjálparsveitanna og sá að þetta var eitthvað sem myndi henta mér. Skil ekkert í því að hafa ekki byrjað fyrr.
Hvers vegna varð HSG fyrir valinu?
HSG lá beinast við, þar sem ég bý um 150m frá Jötunheimum. Þykist líka vera orðinn Garðbæingur og vildi því starfa í “minni” sveit.
Hvernig hefur starfið í vetur verið?
Mjög skemmtilegt í alla staði. Nýliðahópurinn er frábær og hefur ýmislegt verið brallað í vetur. Þjálfararnir og aðrir félagar í HSG hafa líka tekið vel á móti nýliðahópnum og stutt vel við bakið á okkur, þó svo við spyrjum stundum heimskulegra spurninga.
Við hverju bjóstu þegar þú hófst þjálfun?
Ég bjóst satt að segja ekki við því að dagskráin væri svona þétt og svona margt að gerast eins og raunin varð á. Fyrir utan venjulega þjálfun og ferðir þá lentu nýliðarnir fljótlega í fjáröflunartörninni, sem var mjög skemmtileg, einnig stunduðum við fótbolta í vetur með sveitinni, þar sem tilþrif voru oft í öfugu hlutfalli við getu og ýmislegt fleira var gert sem of langt mál væri að telja upp.
Var það eitthvað frábrugðið því sem þú bjóst við?
Starfið í vetur var mun fjölbreyttara en ég reiknaði með og kom mér því skemmtilega á óvart.
Áttu ísbjarnarfælu?
Ekki persónulega, en ein er til á heimilinu í eigu sonar míns. Er reyndar með aðra í smíðum, sem er fest á hjálm og mun bjóða upp á ýmsa möguleika.
Fyrir hverja telur þú starfið í hjálparsveitum vera?
Alla sem hafa áhuga á því að taka virkan þátt í starfinu. Jafnframt held ég að fólk á öllum aldri eigi erindi í hjálparsveitir.
Hvert er eftirminnilegasta atvikið frá sl. vetur?
Eflaust tugþrautin sem haldin var í apríl á Hengilssvæðinu. Þessi þraut reyndi á allt það sem við lærðum í vetur og var því góð æfing við fjölbreyttar aðstæður. Árshátíðin var einnig eftirminnileg.
Hefurðu gert upp hug þinn, varðandi með hvaða flokk / -um þú myndir vilja starfa með?
Á reyndar eftir að kynnast nánar starfi flokkanna núna í vetur, en leitartækni-, bíla- og sleðaflokkar koma sterkir inn.
Hver þykir þér vera helsti kosturinn við að starfa með HSG?
Skemmtilegur félagsskapur og útivera.
Veistu hvar þú getur keypt ísbjarnarfælu?
Í Kaupfélagi Skagfirðinga Sauðárkróki, Kaupfélagi Vestur Húnvetninga á Hvammstanga og svo er bóndinn á Hrauni á Skaga að setja þetta saman, auk þess sem fælan mín verður tilbúin á útmánuðum.
