Útkall Gulur - Leit að manni í Flekkudal á Fellsströnd

24. júlí 2010

Hundateymi sveitarinnar voru kölluð út kl. 3:03 vegna manns sem saknað var í Flekkudal á Fellsströnd.  Eitt hundateymi ásamt hópstjóra hundateyma og bílstjóra fóru til leitar.  Maðurinn fannst um það bil sem þeir voru að hefja leit ásamt 4 öðrum hundateymum og sveitum af svæðum 4, 6, 7, og 8. Um var að ræða fyrsta hundaútkall sveitarinnar þar sem notast var við nýtt leitarskipulag sem byggir á notkun GPS-tækja.

Útkall Gulur - Leit að konu á Leggjabrjóti

22. júlí 2010

Sveitin var kölluð út kl. 14:59 vegna leitar að konu sem datt af hestbaki á Leggjabrjóti.  6 björgunarmenn á bíl og fjórhjóli fóru til leitar, en leitin var afturkölluð þegar þyrla landhelgisgæslunar fann konuna og kom henni til hjálpar.

Útkall Gulur - Innanbæjareit í Reykjavík

10. júlí 2010

Sveitin var kölluð út kl.12:34 til leitar innanbæjar í Reykjavík. Um 20 mínútum síðar voru 9 manns farin úr húsi, þar af tvö hundateymi. Leitað var akandi, gangandi og á reiðhjólum.

Útkall Gulur - Leitað að manni í Landbroti

11. júní 2010

Sveitin var kölluð kl. 10:40 til leitar að manni sem fór úr sumarhúsi og skilaði sér ekki til baka. 3 bílar, 2 fjórhjól, 3 hundar og 11 menn fóru úr húsi, en maðurinn fannst heill á húfi.

Útkall Rauður - Maður hrapaði í Látrabjargi

09. júní 2010

Undanfarar sveitarinnar voru kallaðir út kl. 16:45 vegna manns sem hrapaði í Látrabjargi.  3 undanfarar og bílstjóri fóru úr húsi.  Maðurinn fannst látinn í fjörunni fyrir neðan bjargið.