
Sveitin var kölluð út kl. 21:41 vegna konu sem var týnd í Esjunni. Fyrsti hópurinn fór úr húsi kl. 21:57. Fljótlega kom í ljós að fjórir voru villtir efst í Esjunni, einn íslendingur og þrír útlendingar. 16 björgunarmenn fóru úr húsi á 3 bílum og 2 fjórhjólum. Hópurinn fannst kl. 22:39. Aðgerð lauk kl. 23:34.
