
Rétt eftir kl. níu í morgun voru björgunarsveitirnar kallaðar til á höfuðborgarsvæðinu vegna óveðursins sem gengur yfir borgina. HSG var sett í viðbragðsstöðu í gærkvöldi og þegar kallað var út í morgun liðu aðeins örfáar mínútur þangað til fyrsti hópur lagði af stað úr húsi.
Garðar 1, Garðar 2, Garðar 3 voru í ýmsum verkefnum víðsvegar um borgina með samtals 15 björgunarmenn.
Allir björgunarmenn komu fyrir stuttu aftur upp í hús í hvíld. Veðrið hefur lagast mikið síðan í morgun og hefur sveitin verið afboðuð vegna þessa. Alls voru 18 manns að störfum á vegum sveitarinnar og tók útkallið rúma fjóra klukkutíma.
