Óveðursútkall II

09. nóvember 2006

Sveitin var sett í viðbragðstöðu ásamt tveimur öðrum sveitum um kvöldmatarleytið vegna óveðursins sem gekk yfir landið í gærkvöld og í nótt. Sveitin var kölluð út um hálf tíu í gærkvöld og fóru fyrstu hóparnir úr húsi stuttu seinna, en björgunarmenn voru þegar komnir í hús þegar útkallið barst. HSG var þar af leiðandi fyrsta sveitin til þess að sinna verkefnum kvöldsins. Fóru hóparnir í fjöldann allan af verkefnum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.

Hóparnir snéru í hús eftir miðnætti þar sem veðrið skánaði verulega á tímabili. Eftir gott matarhlé og smá svefn snéru hóparnir aftur út úr húsi og eru ennþá að stöfum þessa stundina. Sveitin verður enn í viðbragðstöðu eitthvað fram eftir morgni en þá kemur nánar í ljós með framhaldið. Alls voru um 20 manns í eða tengdir útkallinu á þremur bílum. Björgunarmenn voru að stöfum í rúma tólf klukkutíma.

... tilbaka