Leit í Hvalfirði

27. nóvember 2006

Sveitin var kölluð út um hálf eitt leytið í nótt til þess að leita af manni sem fór á Kayak í Hvalfirði fyrr um daginn. Korteri eftir að útkall barst var Garðar 2 farinn úr húsi með 5 undanfara og sérbúnað úr húsi og stuttu seinna Garðar 3 með 10 sérhæfða leitarmenn. Garðar 1 var að yfirgefa húsið með 4 björgunarmenn þegar útkallið var afboðað rétt eftir kl 02:00.

Alls tóku 22 björgunarmenn þátt í útkallinu og stóð í rúma tvo klukkutíma.

... tilbaka