
Rétt fyrir kl 05 í morgunn voru björgunarsveitir úr Garðabænum og Hafnafirði ásamt leitarhundum kallaðar út til þess að leita að karlmanni sem hafi ekki skilað sér heim til sín kvöldinu áður. Garðar 2 fór úr húsi kl. 05:23 með tvo sérhæfða leitarmenn, Garðar 1 fór úr húsi kl. 05:40 með þrjá sérhæfða leitarmenn og Garðar 3 fór úr húsi kl. 06:00 með tvo sérhæfða auk bílstjóra. Rúmum tvemum tímum eftir fyrstu boðun voru allar björgunarsveitir kallaðar út þar sem leitin hafði ekki borið neinn árangur.
Maðurinn fannst fyrir stuttu heill á húfi og hafa allar björgunarsveitir verið afturkallaðar. Alls voru 9 björgunarmenn aðstörfum á vegum sveitarinnar og tók aðgerðin u.þ.b. 5 klst.
