
Sveitin var kölluð út rétt fyrir kl 17 í dag ásamt Björgunarsveit Hafnarfjarðar til þess að aðstoða SHS við fluttning á ungri stúlku sem hafði snúið ökla. Stúlkan var stödd í Heiðmörk og var ekki hægt að komast að slystað með bíl. 12 manna hópur var nýkominn niður í hús eftir vel heppnaða ferð þegar útkallið barst og þess vegna var viðbragðstími mjög lítill. Alls tóku 11 manns þátt í aðgerðinni frá HSG og voru fjórhjól sveitarinnar einnig kölluð út. stúlkan var borin á börum stutta vegalengd, og sett í sjúkrabíl neyðarsveitar SHS sem flutti hana á slysadeild. Aðgerðum lauk svo rúmlega klst síðar. Fjölskylda stúlkunar sendir öllum þeim sem komu að björguninni þakkarkveðjur.
