
Fyrr í dag varð öflugur jarðskjálfti vestur af Selfossi sem mældist um 6.1 á richter. Fréttir bárust af miklum eignaskemmdum og einhverjum slysum á fólki. Almannavarnir settu í kjölfarið sveitir á höfuðborgarsvæðinu í viðbragðsstöðu stuttu eftir að skjálftinn reið yfir og var fyrsti hópurinn (Garðar 3) lagður af stað úr húsi um kl. 16:30 með 6 manns. Garðar 2 fylgdi í kjölfarið rétt eftir kl 17 með 5 manns og tók hann með sér rústabjörgunarkerru ásamt öðrum neyðarbúnaði og verkfæri. Garðar 1 lagði af stað svo stuttu seinna með 5 manns ásamt tjöldum og öðrum almannavarnabúnaði.
Hundaflokkurinn var boðaður út og sendi sveitin alls 3 hunda í leitina. Einnig var fjórhjól notað í aðgerðinni
Útkallshóparnir sneru aftur upp í Jötunheima kl 3:00 í nótt. Þegar uppi var staðið tóku um 30 björgunarmenn þátt á vegum sveitarinnar í 5 mismunandi hópum. Einnig tóku þrír hundar frá HSG þátt í aðgerðinni.
