
Sveitin var kölluð út kl. 15:12 vegna manns sem hafði öklabrotnað í Esju. 4 björgunarmenn fóru úr húsi. Björgunarmenn komu manninum fyrir í börum og báru hann niður á bílstæði við Mógilsá. Aðgerð lauk kl. um kl 17:05.
Hættustig var boðað kl. 13:14 vegna Boeing 767 frá American Airlines sem kom inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli með 145 farþega. Vélinni var á leið frá París til Dallas í Bandaríkjunum og óskaði eftir öryggislendingu í Keflavík vegna eiturgufu í farþegarými. 24 björgunarmenn fóru af stað, en aðgerðin var afturkölluð eftir að lenti heilu og höldnu. Aðgerð lauk um kl 14:40.
Sveitin var kölluð út kl. 14:35 vegna manns sem var á vesturtindi Hjálms í Grímannsfelli í Mosfellsdal. 8 björgunarmenn fóru af stað á 2 bílum. Björgunarmenn komu manninum fyrir í börum, en þyrla sem kom á vettvang kom honum á súkrahús. Aðgerð lauk kl. um kl 16:30
Bátaflokkur var kallaður til leitar að konu í Reykjavík kl.. 12:12 þegar flokkurinn var við æfingar í Fossvogi ásamt bátaflokki Ársæls. Leitað var frá olíubryggunni í Örfyrisey og að Sundahöfn. Leitin bar ekki árangur og var leit hætt um 15:30. Konan kom síðan fram, heil á húfi.
