
Sveitin var kölluð út vegna Slyss við Spákonufell. 3 undanfarar fóru úr húsi.
Hundateymi sveitarinnar voru kölluð út kl. 3:03 vegna manns sem saknað var í Flekkudal á Fellsströnd. Eitt hundateymi ásamt hópstjóra hundateyma og bílstjóra fóru til leitar. Maðurinn fannst um það bil sem þeir voru að hefja leit ásamt 4 öðrum hundateymum og sveitum af svæðum 4, 6, 7, og 8. Um var að ræða fyrsta hundaútkall sveitarinnar þar sem notast var við nýtt leitarskipulag sem byggir á notkun GPS-tækja.
Sveitin var kölluð út kl. 14:59 vegna leitar að konu sem datt af hestbaki á Leggjabrjóti. 6 björgunarmenn á bíl og fjórhjóli fóru til leitar, en leitin var afturkölluð þegar þyrla landhelgisgæslunar fann konuna og kom henni til hjálpar.
Undanfarar sveitarinnar voru boðaðir út vegna ökklabrots við Glym. Undanfarar sveitarinnar voru allir utanbæjar og gátu ekki sinnt kallinu.
Sveitin var kölluð út kl.12:34 til leitar innanbæjar í Reykjavík. Um 20 mínútum síðar voru 9 manns farin úr húsi, þar af tvö hundateymi. Leitað var akandi, gangandi og á reiðhjólum. Maðurinn fannst gangandi í Fossvogi.
