
Sveitin var kölluð út kl. 21:41 vegna konu sem var týnd í Esjunni. Fyrsti hópurinn fór úr húsi kl. 21:57. Fljótlega kom í ljós að fjórir voru villtir efst í Esjunni, einn íslendingur og þrír útlendingar. 16 björgunarmenn fóru úr húsi á 3 bílum og 2 fjórhjólum. Hópurinn fannst kl. 22:39. Aðgerð lauk kl. 23:34.
Sveitin var kölluð út kl. 21:17 vegna konu sem slasaðist í Esjunni. 10 björgunarmenn fóru úr húsi á 3 bílum. Konan sem var fótbrotinn var borinn niður í börum og flutt á sjúkrahús kl. 23:05. Alls tóku 7 sveitir í aðgerðinni sem lauk kl: 23:30.
Sveitin var kölluð út að kvöldlagi vegna manns sem saknað var á Ingólfsfjalli. Maðurinn, sem er um sjötugt, varð viðskila við gönguhóp þegar svartaþoka skall á í fjallinu. Hann fannst fyrir ofan Þórisstaðanámu rétt eftir klukkan átta og hafði þá verið á gangi allan tímann.
Fjórir hópar, 14 björgunarmenn, fóru úr húsi í innanbæjarleit í Mosfellsbæ kl. 20:55. Maður sem leitað var að fannst heill á húfi um kl. 22:30.
Undanfarar sveitarinnar voru kallaðir út vegna slasaðs manns í Esjunni kl. 17:55. Beiðnin var afturkölluð kl. 18:05, um það leyti sem fjórir undanfarar voru að fara úr húsi.
