
Hjálparsveitin var kölluð út laust eftir klukkan tvö vegna fjallabjörgunar í Skessuhorni. Um var að ræða 12 manna hóp þar sem einn hafði slasast . Hinn slasaði var kominn um borð í þyrluna að verða klukkan 22. Alls tóku þátt í aðgerðinni 15 félagar, þar af 4 undanfarar, auk 3 hundateyma, 4 bíla, 4 snjósleða og 2 fjórhjóla.
Hjálparsveitin var kölluð út síðdegis til leitar að aldraðri konu sem saknað hafði verið af heimili sínu í Grafarvogi frá því klukkan 11 um morguninn. Sveitin sendi leitarhópa til leitar, en konan fannst heil á húfi áður en skipulögð leit hófst. Rannsóknarvinna leiddi til þess að hún fannst, en hún var stödd í Maríuhúsi sem er sérhæfð dagþjálfun fyrir Alzheimersjúka.
Hjálparsveitin var boðuð til leitar að konu sem saknað hafði verið síðan 25.febrúar. Sérhæfður leitartæknihópur og leitarmaður á fjórhjóli leituðu fram á kvöld.
Hjálparsveitin var kölluð út um kvöld til leitar að 2 mönnum í Skarðsheiði. Annar maðurinn fannst fljótlega, en hinn talsvert seinna. Seinni maðurinn var orðinn kaldur og þrekaður þegar hann fannst.
Hjálparsveitin var kölluð út að kvöldlagi vegna óveðursaðstoðar. Tveir hópar frá sveitinni voru að störfum allt kvöldið og luku síðustu verkefnum sínum eftir miðnættið.
