Flugvél í neyð á Keflavíkurflugvelli

31. júlí 2008

Björgunarsveitir voru boðaðar út á sunnudaginn en flugvél frá Icelandair sneri við eftir hreyfill á vélinni bilaði. Aðgerðin var afturkölluð stuttu seinna en vélin lenti án vandræða á Keflavíkurflugvelli.

Leit í Esju

24. júlí 2008

Rétt eftir hádegi var sveitin kölluð út til að leita að karlmanni í Esju. Maðurinn er þar að ganga nakinn samkvæmt sjónarvottum. Svartaþoka er á svæðinu og eru leitarskilyrði ekki góð. 

Sveitin sendi þrír björgunarmenn í Garðari 1 og einn björgunarmann á fjórhjóli. Einnig voru boðaðir út leitarhundar og fóru þeir á Garðari 3 með hundakerruna. Hóparnir sneru tilbaka um kl 1 eftir miðnætti. Fjölmargir björgunarmenn voru staddir fyrir norðan á Landsmóti skáta þegar útkallið barst og voru því fáir björgunarmenn í bænum.

Kl 9 á föstudagsmorgun sendi sveitin tvo björgunarmenn til að aðstoða við leitina. Þyrla Landhelgisgæslunar fann svo manninn laust fyrir hádegi og var hann þá látinn.

Nauðlending á Keflavíkurflugvelli

10. júlí 2008

Fyrr í dag voru björgunarsveitir kallaðar út þegar farþegaþota með um 180 manns um borð nauðlenti á Keflavíkurflugvellinum rétt fyrir hálf fjögur í dag. Allt fór vel og var aðgerðin afturkölluð stuttu seinna. Björgunarmenn frá sveitinni voru komnir upp í hús og voru að gera sig tilbúna til að leggja af stað.

Leit að alzheimersjúklingi í Kópavogi

07. júlí 2008

Björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út eftir hádegi í dag til að leit af Alzheimersjúklingi í Kópavoginum. Sveitin sendi frá í aðgerðina tvö fjórhjól og Garðar 3 með 5 björgunarmenn. 

Maðurinn fannst heill á húfi um fjögur leytið og var aðgerðinni þá afturkölluð.

Leit að 11 ára stúlku

14. júní 2008

Sérhæfðir leitarhópar voru boðaðir út til rétt eftir hádegi í dag til að leita að 11 ára stúlku sem hafði týnst af heimili sínu á Höfuðborgarsvæðinu. Stúlkan fannst heil á húfi rétt eftir kl 13 og var leitin afturkölluð í kjölfarið.