Jarðskjálfti vestur af Selfossi

30. maí 2008

Fyrr í dag varð öflugur jarðskjálfti vestur af Selfossi sem mældist um 6.1 á richter. Fréttir bárust af miklum eignaskemmdum og einhverjum slysum á fólki. Almannavarnir settu í kjölfarið sveitir á höfuðborgarsvæðinu í viðbragðsstöðu stuttu eftir að skjálftinn reið yfir og var fyrsti hópurinn (Garðar 3) lagður af stað úr húsi um kl. 16:30 með 6 manns. Garðar 2 fylgdi í kjölfarið rétt eftir kl 17 með 5 manns og tók hann með sér rústabjörgunarkerru ásamt öðrum neyðarbúnaði og verkfæri. Garðar 1 lagði af stað svo stuttu seinna með 5 manns ásamt tjöldum og öðrum almannavarnabúnaði.

Hundaflokkurinn var boðaður út og sendi sveitin alls 3 hunda í leitina. Einnig var fjórhjól notað í aðgerðinni

Útkallshóparnir sneru aftur upp í Jötunheima kl 3:00 í nótt. Þegar uppi var staðið tóku um 30 björgunarmenn þátt á vegum sveitarinnar í 5 mismunandi hópum. Einnig tóku þrír hundar frá HSG þátt í aðgerðinni.

Leit að 6 ára stúlku við Vífilstaðarvatn

05. maí 2008

Fyrir stuttu voru björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu kallaðar út og leita nú að 6 ára stúlku við Vífilstaðarvatn. Garðar 2 og fjórhjólin tvö taka þátt í útkallinu. 

Stúlkan fannst fyrir stutt heil á húfi og hefur aðgerðin verið afturkölluð

Leit að 4 mönnum í Esju

10. febrúar 2008

Undanfarar á höfuðborgarsvæðinu voru kallaðir út til að leita af fjórum mönnum sem týndust á laugardaginn. Undanfarar HSG voru flestir ennþá erlendis og þess vegna gat sveitin ekki sent hóp frá sér í útkallið.

Óveðursútkall

08. febrúar 2008

Kl 17:30 var sveitin kölluð út vegna óveðurs sem gengur nú yfir höfuðborgarsvæðið. Mörg verkefni hafa borist Neyðarlínunni og voru flest þeirra vegna vatnsleka.

Rétt fyrir kl 01 fækkaði örlítið í mannskapnum, enda flestir búnir að vera að síðan aðgerðin hófst. Garðar 2 hætti en einhverjir sameinuðust Garðari 3, sem hélt áfram til kl 3:30 enda hefur veðrið skánað töluvert.

Aðstoð við Hvaleyrarvatn

21. janúar 2008

Svæðisstjórn hafði samband við sveitina kl 18:00 í dag til þess að aðstoða bíl við Hvaleyrarvatn. 3 björgunarmenn fóru af stað stuttu seinna á Garðari 1. Aðgerðin tók rétt um hálfan klukkutíma.