
Björgunarsvetir af svæði 1 voru í morgun kölluð út til þess að leita að 19 ára dreng sem ekkert hefur spurst til frá því í gærmorgun. 6 björgunarmenn lögðu af stað á Garðari 3 fyrir stuttu. Einnig lagði af stað björgunarmaður á fjórhjóli til þess að aðstoða við leitina.
Hundaflokkur hafði þó verið í leitinni frá kvöldinu áður og eru sumir þeirra en við leit þegar þetta er skrifað.
Drengurinn sem leitað er að var á göngu heim til sín eftir áramótaskemmtun á Broadway. Víðamikil leit hefur verið í nótt að drengnum frá austurborginni og að Árbænum. Svæðistjórn hefur boðað út rétt fyrir hádegi björgunarhópa af nærliggjandi svæðum til þess að aðstoða við leitina.
Annað fjórhjól lagði af stað fljótlega upp úr kl 15 með tvo einstaklinga og annar björgunarmaður bættist á fyrsta fjórhjól. Garðar 1 og Garðar 2 lögðu af stað svo fljótlega upp úr kl 17 með um 10 björgunarmenn. Búið er að afturkalla leit á meðan unnið er úr vísbendingum sem fundist hafa í dag.
Búist er við óveðri í dag og fram eftir degi á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni verður hvellurinn svipaður og óveðrinu sem geysaði hér þann 14. des. Búist er við að 20-25m/s í frá kl 5 til 16 en vindhraðinn á að vera 23-28 m/s frá kl 8 til 11. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð boðaði HSSR, BSH, Ársæl og FBSR í viðgragð nú í nótt en sveitin ákvað að hafa hóp kláran upp í húsi ef þess þyrfti. Þegar hafa nokkur verkefni dottið frá því kl 4 í nótt. Snemma í morgun fóru svo að detta inn ýmisleg verkefni, þó voru flest þeirra vegna þess að mikið magn af vatni hafði safnast fyrir á götum og flætt í bílakjallara. Sveitin sendi frá sér tvo hópa í aðgerðina. Aðgerðum lauk formlega kl 20.
Frá því kl 3 í nótt hefur hópur björgunarmenna verið í viðbragðsstöðu í Jötunheimum. Í gærkvöldi var HSG, HSSR og FBSR beðnir um að hafa til hóp í viðbragðsstöðu ef einhver verkefni kæmu inn. Fyrstu verkefnin komu í hús rétt fyrir kl 6 í morgun og hefur þeim fjölgað síðan þá. Mikið eru um fok og skemmdir á mannvirkjum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Sjö manna hópur sat vaktina í morgun en búist er við að veðrið nái hámarki um hádegisbilið. Um kl 11 leytið lagði af stað annar hópur. Alls bárust vel yfir 350 aðstoðarbeiðnir í gær. Aðgerðinni lauk svo um kl 20 í gærkvöldi.
Sveitir á höfuðborgarsvæðinu voru settar í viðbragsstöðu rétt fyrir miðnætti vegna óveðursins sem gegnur yfir landið á ný. Sveitin var viðbragðsstöðu rétt eftir kl 01:00 þegar verkefnum fjölgaði.
Í dag hafa björgunarsveitarmenn víða um landið verið að störfum í óveðrinu sem gengur yfir landið. Flest verkefni eru í Hafnafirði og efri byggðum í Reykjavík og Kópavogi. Meðal verkefna er fok á bílum, fok af byggingasvæðum, rúðubrot og þakplötur að losna. Fyrsta verkefnið kom rétt eftir kl 5 í dag en þar höfðu ungir drengir fest jeppabifreið sína. Í sama verkefni aðstoðaði hópurinn einnig nokkra vélsleðamenn í bláfjöllum sem höfðu fest jeppabifreið sína og réðu ekki við vélsleðakerru sem þeir höfðu meðferðis. Sveitin var sett í viðbraðgsstöðu kl 20:14 og hefur verkefnum ringt yfir okkur síðan þá. Gert er ráð fyrir að stormurinn gangi yfir um kl 01:00 í nótt. Útkallinu lauk rétt fyrir kl 02:00.
