
Sveitin var kölluð út rétt fyrir kl 17 í dag ásamt Björgunarsveit Hafnarfjarðar til þess að aðstoða SHS við fluttning á ungri stúlku sem hafði snúið ökla. Stúlkan var stödd í Heiðmörk og var ekki hægt að komast að slystað með bíl. 12 manna hópur var nýkominn niður í hús eftir vel heppnaða ferð þegar útkallið barst og þess vegna var viðbragðstími mjög lítill. Alls tóku 11 manns þátt í aðgerðinni frá HSG og voru fjórhjól sveitarinnar einnig kölluð út. stúlkan var borin á börum stutta vegalengd, og sett í sjúkrabíl neyðarsveitar SHS sem flutti hana á slysadeild. Aðgerðum lauk svo rúmlega klst síðar. Fjölskylda stúlkunar sendir öllum þeim sem komu að björguninni þakkarkveðjur.
Sveitin var kölluð út rétt fyrir miðnætti til þess að fjarlægja stórt auglýsingaskilti af Krana á vinnusvæði við Glæsibæ. Mikil hætta stafaði af skiltinu þar sem það var farið að losna af og gæti fokið út á veg. Sveitin sendi tvo undanfara á staðinn og lögðu þeir af stað kl 00:05. Aðgerðum lauk svo rétt eftir kl 1.
étt eftir kl 17 í dag var sveitin sett í viðbragðsstöðu vegna óveðurs sem gengur yfir höfuðborgarsvæðið þessa stundina. Beðið var um 5 manna hóp til þess vera klárir í húsi ef einhver verkefni skyldu detta inn. Þessa stundina eru um 13 björgunarmenn tilbúnir til þess að ganga í ýmiskonar verkefni. Alls hafa 3 verkefni komið til okkar síðan við vorum boðaðir út.
Kl 20 var sveitin afboðuð þar sem veðrið hafði skánað þónokkuð.
Eins og heyrst hefur í kvöldfréttum féll maður út í Sogið fyrr í dag og hefur verið leitað af honum stíft síðan þá. Björgunarsveitir af svæði 1 voru svo kallaðar út rétt eftir kl 20 og sendum við 12 manns í aðgerðina á tveimum bílum og einu fjórhjóli. Björgunarmenn sneru aftur upp í Jötunheima um kl 3 eftir miðnætti eftir árangslausa leit. Leit hefur haldið áfram af björgunarmönnum af nærliggjandi svæðum.
Nú er nýlokið leit að tveimur þýskum ferðamönnum á Öræfajökli. Þrír undanfarar flugu austur á Höfn á fimmtudag með flugvél LHG auk þess sem Garðar 2 kom austur um kvöldið. Tveir undanfarar og bílstjórar bættust við aðfaranótt laugardags. Leitarsvæðið var gríðarstórt og erfitt yfirferðar, stórar sprungur, svelgir og falljöklar. Leitarmenn stóðu sig frábærlega í erfiðum og krefjandi aðstæðum.
