
Undanfarar á Höfuðborgarsvæðinu voru kallaðar út rétt fyrir miðnætti til þess að aðstoða við björgun á manni sem fallið hafði niður töluverða hæð og er í bráðri lífshættu. Einn undanfari fór frá okkur með þyrlu Landhelgisgæslunar. Björgunin gekk vel og lauk henni rétt fyrir kl 5 í morgun.
Sveitin var kölluð út um klukkan hálf fimm á laugardaginn til þess að aðstöða Slökkviliðið við að slökka gróðurelda við Nesjavallaveg. Sveitin sendi frá sér þrjá björgunarmenn en á sama tíma var sveitin að sinna gæslustörf á Laugardalsvelli. Slökkvistarfið gekk vel og var búið að slökkva eldana rétt fyrir kl tíu.
Undanfarar voru kallaðir út um klukkan hálf fjögur síðasta föstudag til þess að aðstoða við björgun á eldri manni. Sveitin sendi frá sér tvo menn í útkallið en fannst maðurinn heill á húfi rétt fyrir klukkan sex.
Fyrir stuttu voru Undanfara af Svæði 1 og 4 til þess að sækja slasaða konu í Botnsúlum. Garðar 2 lagði af stað með 3 undanfara plús bílstjóra fyrir rúmum hálftíma síðan. Um hálf fimm leytið sótti þyrla LHG konuna og er aðgerðinni formlega lokið.
Sveitn var kölluð í leit að manni við Holtagarða. Fyrst fóru Garðar 2 og Garðar 3 út úr húsi með 8 leitarmenn og 2 bílstjóra. Maðurinn fannst svo rétt um hádegi heill á húfi.
