Viðbúnaður á Reykjavíkurflugvelli

27. febrúar 2007

Sveitin var sett í viðbragðsstöðu vegna flugvélar þar sem lendingarbúnaður hafi bilað. Vélin lennti þó heilu og höldnu stuttu seinna og var útkallið afturkallað.

Leit að konu á Höfuðborgarsvæðinu

07. febrúar 2007

Um hálf tíu voru björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu kallaðar út til þess að leita af konu á höfuðborgarsvæðinu. Konan fannst rétt rúmum klukkutíma seinna heil á húfi.

Rafmagnslaust í Bláfjöllum

19. janúar 2007

Sveitin var kölluð fyrir stuttu til þess að aðstoða skíðamenn úr stóru skíðalyftunni í Bláfjöllum, sem stöðvaðist vegna rafmagnsbilunar. Einnig fór rafmagn af öllu Bláfjallavæðinu og þarf einnig þar af leiðandi að rýma svæðið. Sveitin sendi 7 björgunarmenn úr húsi á Garðari 1 og Garðari 2. Björgunarmennirnir voru að undirbúa gönguferð upp í húsi og var fyrsti bílinn farinn af stað nokkrum mínútum eftir að útkallið kom.

Aðgerðin tók rúma tvo klst og eru báðir bílarnir komir aftur niður í hús.

Leit að karlmanni í kjóardal

04. janúar 2007

Rétt fyrir kl 05 í morgunn voru björgunarsveitir úr Garðabænum og Hafnafirði ásamt leitarhundum kallaðar út til þess að leita að karlmanni sem hafi ekki skilað sér heim til sín kvöldinu áður. Garðar 2 fór úr húsi kl. 05:23 með tvo sérhæfða leitarmenn, Garðar 1 fór úr húsi kl. 05:40 með þrjá sérhæfða leitarmenn og Garðar 3 fór úr húsi kl. 06:00 með tvo sérhæfða auk bílstjóra. Rúmum tvemum tímum eftir fyrstu boðun voru allar björgunarsveitir kallaðar út þar sem leitin hafði ekki borið neinn árangur.

Maðurinn fannst fyrir stuttu heill á húfi og hafa allar björgunarsveitir verið afturkallaðar. Alls voru 9 björgunarmenn aðstörfum á vegum sveitarinnar og tók aðgerðin u.þ.b. 5 klst.

Leit að eldri manni

27. desember 2006

klukkan 1:20 voru björgunarsveitir á Höfuðborgarsvæðinu kallaðar út til leitar innanbæjar að eldri manni með Alzheimer sem hafði horfið af dvalarheimili í borginni. 10 leitarmenn ásamt bílstjórum á tveimur bílum fóru frá okkur til leitar. Aðeins um hálftíma eftir að leit var hafin fannst maðurinn. Hann var þá á gangi í borginni og amaði ekkert að honum.