Óveðursútkall

22. desember 2006

Sveitin var sett í viðbragð vegna óveðursinns sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið þetta kvöld. Minna var að gera heldur enn búist var við enn sveitin fékk m.a. símhringingu frá íbúa Garðabæjar og bað um sveitina um aðstoð við að festa niður

Óveðursútkall

21. desember 2006

Sveitin var kölluð út til þess að sinna ýmsum verkefnum tengt óveðrinu sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið.

Strandað Skip fyrir utan Sandgerði

20. desember 2006

Klukkan 07:25 í gærmorgun barst útkall rauður eftir að bát sem skipverjar af danska varðskipinu Triton voru í hafði hvolft og skipverjar lent í sjónum. Voru mennirnir að reyna að aðstoða skipverja Wilson Muuga sem strandaði fyrr um nóttina sunnan Sandgerðis. Garðar 1 og Garðar 2 fóru úr húsi um tuttugu mínútum síðar á forgangi með 9 manns og um áttaleytið fór Garðar 3 úr húsi með 7 manns til viðbótar. Sinntu hjálparsveitarmenn HSG margvíslegum verkefnum og má þar telja fjöruleit, aðstoð við að koma línu í Wilson Muuga, móttaka skipverja úr þyrlu Landhelgisgæslunnar og aðstoð við að setja upp sjúkratjald. Alls tóku 18 manns þátt í aðgerðinni sem stóð í um 10 klst.

Fjallabjörgun við Hafravatn

02. desember 2006

Undanfarar voru kallaðar út rétt eftir hádegi til þess að aðstoða við björgun við Hafravatn. Fjölmennt björgunarlið var sent á staðinn og var útkallið afturkallað stuttu seinna þar sem aðstæður á slysstað voru ekki eins alvarlegar og fyrst var haldið. Alls voru 7 bjögunarmenn sem tóku þátt í útkallinu og tók útkallið rúma klst.

Leit í Hvalfirði

27. nóvember 2006

Sveitin var kölluð út um hálf eitt leytið í nótt til þess að leita af manni sem fór á Kayak í Hvalfirði fyrr um daginn. Korteri eftir að útkall barst var Garðar 2 farinn úr húsi með 5 undanfara og sérbúnað úr húsi og stuttu seinna Garðar 3 með 10 sérhæfða leitarmenn. Garðar 1 var að yfirgefa húsið með 4 björgunarmenn þegar útkallið var afboðað rétt eftir kl 02:00.

Alls tóku 22 björgunarmenn þátt í útkallinu og stóð í rúma tvo klukkutíma.