
Rétt fyrir klukkan níu í morgun voru björgunarsveitir kallaðar út til þess að leita að einstaklingi á Reykjavíkursvæðinu. Rúmum hálftíma eftir að útkall barst var Garðar 1 farinn úr húsi með 5 björgunarmenn og stuttu seinna fór Garðar 2 einnig með 5 björgunarmenn úr húsi.
Maðurinn fannst heill á húfi um tíuleytið.
Nú undir morgunsárið voru björgunarsveitir settar í viðbragð enn snjóað hefur núna jafnt og þétt alla nóttina. Fjöldan allur af bílum eru fastir víðsvegar um borgina og er ástandið líklegast verst í Grafarvogi, Grafarholti og Breiðholti. Sveitin sendi frá sér Garðar 1 og Garðar 2 með samtals fjóra björgunarmenn. Um hádegi fækkaði um tvo enn einn bættist við og var aðeins Garðar 1 notaður með þrjá björgunarmenn.
Samtals tók útkallið rúma 11 klst og voru 5 björgunarmenn að stöfum þetta sinn.
Sveitin var sett í viðbragðstöðu ásamt tveimur öðrum sveitum um kvöldmatarleytið vegna óveðursins sem gekk yfir landið í gærkvöld og í nótt. Sveitin var kölluð út um hálf tíu í gærkvöld og fóru fyrstu hóparnir úr húsi stuttu seinna, en björgunarmenn voru þegar komnir í hús þegar útkallið barst. HSG var þar af leiðandi fyrsta sveitin til þess að sinna verkefnum kvöldsins. Fóru hóparnir í fjöldann allan af verkefnum víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.
Hóparnir snéru í hús eftir miðnætti þar sem veðrið skánaði verulega á tímabili. Eftir gott matarhlé og smá svefn snéru hóparnir aftur út úr húsi og eru ennþá að stöfum þessa stundina. Sveitin verður enn í viðbragðstöðu eitthvað fram eftir morgni en þá kemur nánar í ljós með framhaldið. Alls voru um 20 manns í eða tengdir útkallinu á þremur bílum. Björgunarmenn voru að stöfum í rúma tólf klukkutíma.
Rétt eftir kl. níu í morgun voru björgunarsveitirnar kallaðar til á höfuðborgarsvæðinu vegna óveðursins sem gengur yfir borgina. HSG var sett í viðbragðsstöðu í gærkvöldi og þegar kallað var út í morgun liðu aðeins örfáar mínútur þangað til fyrsti hópur lagði af stað úr húsi.
Garðar 1, Garðar 2, Garðar 3 voru í ýmsum verkefnum víðsvegar um borgina með samtals 15 björgunarmenn.
Allir björgunarmenn komu fyrir stuttu aftur upp í hús í hvíld. Veðrið hefur lagast mikið síðan í morgun og hefur sveitin verið afboðuð vegna þessa. Alls voru 18 manns að störfum á vegum sveitarinnar og tók útkallið rúma fjóra klukkutíma.
Leitað var að manni á Hengilssvæðinu í kvöld. Allir bílarnir 3 fóru úr húsi með leitarmenn, auk þess sem hundahópur HSG fór til leitar á eigin bílum. Sveitin var kölluð út kl. 21:40 og fyrsti bíllinn fór úr húsi rúmum hálftíma seinna.
Garðar 3 sneri aftur til baka til þess að sækja viðbótarmannskap og fór stuttu síðar úr húsi með 9 manns. Samtals voru um 25 aðilar að störfum á vegum sveitarinnar í útkallinu.
Upp úr miðnætti fann leitarhundur úr hundahóp HSG manninn látinn í Dyradal við Dyrafjöll, vestan við Nesjavallavirkjun.
