Leit að eldri konu innanbæjar

03. júlí 2006

Sérhæfðir leitarhópar voru kallaðir út rétt fyrir kl. 20:00 til þess að aðstoða við leit á eldri konu sem var viðskila fyrr um daginn. Kl. 20:10 lagði Garðar 3 af stað með 9 manns úr húsi, enn Garðar 1 var tilbúinn upp í húsi að bíða eftir 3 í viðbót.

Konan fannst svo heil á húfi rétt fyrir kl. 21:00.

Snjóflóð á Hvannadalshnjúk

30. maí 2006

Eins og kunnugt er féll Snjóflóð rétt eftir hádegi á Hvannadalshnjúki með þeim afleiðingum að þrír menn slösuðust. Garðar 1 lagði af stað nú fyrir stundu með einum undanfara.

Björgun í Esjuni

25. maí 2006

Sveitin var kölluð út áðan til þess að aðstoða lögreglu við að flytja slasaðan einstakling niður af Esjuni. Garðar 3 fór úr húsi með 3 einstaklinga.

Leit að manni á Grímstöðum á Fjöllum

15. maí 2006

Leitarhópur á vegum HSG er nú lagður af stað til þess að taka þátt í leit að manni nálægt Grímstöðum á Fjöllum, sem hvarf úr samkvæmi í fyrranótt og hefur ekki heyrst í síðan. Björgunarsveitir hafa verið við leit í alla nótt enn leitin hefur ekki borið árangur hingað til.

Týndir vélsleðamenn

13. apríl 2006

Rétt fyrir klukkan tvö eftir miðnætti var sleða- og beltahópurinn okkar kallaður út vegna leit á tvemum vélsleðamönnum, sem höfðu ekki skilað sér niður af Langjökli. Snjóbílinn okkar fór með 3 manns rétt fyrir klukkan fjögur og er búinn að vera að leita síðan þá.

Í morgunn var svo ræstir út leitarhópar og fóru 10 manns á tveimum bílum hér út úr húsi fyrir stuttu.