
Sveitin var kölluð út til þess að aðstoða við leit að týndum manni eftir að snjóflóð féll í Hoffelsdal í Fáskrúðsfriði. Hinsvegar var sveitin afturkölluð uþb hálftíma eftir að utkallið barst.
Rétt fyrir miðnætti þann 27. mars barst sveitinni tilkynning um að leit væri hafin að grárri Toyota Corolla. Fljótlega eftir að utkall barst fóru allir bílar sveitarinnar af stað með 6 manns innan borðs í leitina, sem bygðist að mestu upp á slóðaleit á svæði 1.
Leitað var alveg til morgunns og fór nýr mannskapur úr húsi um kl 9 af stað á Garðari 2 með 3 manns. Um kl 14 fannst svo maðurinn látinn í bifreið sinni rétt hjá flúðum.
Alls fóru 9 manns í útkallið á 3 bílum, Garðari 1, Garðari 2 og Garðari 3.
Sveitin var kölluð út kl 18:11 og beðið um Jeppa og snjóbil til að fara upp á Hofsjökul vegna jeppa með 2 mönnum sem hafði keyrt ofaní sprungu .. báðir jeppar sveitarinnar fóru af stað með 6 undanfara og 4 bílstjóra einnig var snjóbíllinn við það að leggja af stað en var fljótlega snúið við . Björgunarlið af höfuðborgarsvæðinu safnaðist saman við þyrlupallinn hjá Hrauneyjum , en flytja átti björgunarmenn að jöklinum með þyrlu varnarliðsins .. um miðnætti var svo búið að ná mönnunum upp úr sprungunni , annar var látin , en hinn var fluttur alvarlega slasaður með þyrlunni til Reykjavíkur.. komið var í bæinn um 01:30
Sveitin var kölluð út 02:42 til leitar að misþroska karlmanni sem saknað hafði verið síðan um kvölmatarleyti.. síðast sást til mannsins í Smáralind og var leitað á svæðinu þar í kring. Maðurinn fannst svo heill á húfi um 08:00 .. hafði hann þá gengið töluverðan spöl..
Sérhæfðir leitarhópar voru kallaðir út á þriðja tímanum í dag til leitar að dreng sem ekki hafði skilað sér úr skólasundi . Um fimmtíu manns voru að leita eða um það bil að hefja leit þegar drengurinn kom fram heill á húfi. 8 manns fóru frá Hjálparsveit Skáta Garðabæ á tveimur bílum.
