
Undanfarar sveitarinnar voru boðaðir út vegna ökklabrots við Glym. Undanfarar sveitarinnar voru allir utanbæjar og gátu ekki sinnt kallinu.
Sveitin var kölluð út kl.12:34 til leitar innanbæjar í Reykjavík. Um 20 mínútum síðar voru 9 manns farin úr húsi, þar af tvö hundateymi. Leitað var akandi, gangandi og á reiðhjólum. Maðurinn fannst gangandi í Fossvogi.
Hálendisgæsla sveitarinnar leitaði að Spánverjum sem skiluðu sér ekki á réttum tíma í Álftavatn frá Hrafntinnuskeri. Leitað var fótgangandi, á bíl og á fjórhjóli.
Sveitin var kölluð kl. 10:40 til leitar að manni sem fór úr sumarhúsi og skilaði sér ekki til baka. 3 bílar, 2 fjórhjól, 3 hundar og 11 menn fóru úr húsi, en maðurinn fannst heill á húfi.
Undanfarar sveitarinnar voru kallaðir út kl. 16:45 vegna manns sem hrapaði í Látrabjargi. 3 undanfarar og bílstjóri fóru úr húsi. Maðurinn fannst látinn í fjörunni fyrir neðan bjargið.
