Útkall Gulur - Slasaður maður á Miðfellstindi

01. maí 2010

Undanfarar sveitarinnar voru kallaðar út kl. 16:29 ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar maður slasaðist illa á fæti á Miðfellstindi á Vatnajökli.  Þyrlan fór með undanfara björgunarsveita af höfuðborgarsvæðinu austur og lenti á slysstað rétt eftir klukkan 18 og flutti manninn á sjúkrahús í Reykjavík.

Eldgos í Eyjafjallajökli

23. apríl 2010


Útkall Rauður - Öklabrotinn maður í Esju

17. apríl 2010

Sveitin var kölluð út kl. 15:12 vegna manns sem hafði öklabrotnað í Esju. 4 björgunarmenn fóru úr húsi.  Björgunarmenn komu manninum fyrir í börum og báru hann niður á bílstæði við Mógilsá.  Aðgerð lauk kl. um kl 17:05.

Útkall Gulur - Hættustig - Stórt - FLUGKEF - B767

13. apríl 2010

Hættustig var boðað kl. 13:14 vegna Boeing 767 frá American Airlines sem kom inn til lendingar á Keflavíkurflugvelli með 145 farþega.  Vélinni var á leið frá París til Dallas í Bandaríkjunum og óskaði eftir öryggislendingu í Keflavík vegna eiturgufu í farþegarými.  24 björgunarmenn fóru af stað, en aðgerðin var afturkölluð eftir að lenti heilu og höldnu.  Aðgerð lauk um kl 14:40.

Útkall Rauður - Maður með slæman brjóstverk

11. apríl 2010

Sveitin var kölluð út kl. 14:35 vegna manns sem var á vesturtindi Hjálms í Grímannsfelli í Mosfellsdal.  8 björgunarmenn fóru af stað á 2 bílum.  Björgunarmenn komu manninum fyrir í börum, en þyrla sem kom á vettvang kom honum á súkrahús.  Aðgerð lauk kl. um kl 16:30