
Bátaflokkur var kallaður til leitar að konu í Reykjavík kl.. 12:12 þegar flokkurinn var við æfingar í Fossvogi ásamt bátaflokki Ársæls. Leitað var frá olíubryggunni í Örfyrisey og að Sundahöfn. Leitin bar ekki árangur og var leit hætt um 15:30. Konan kom síðan fram, heil á húfi.
Sveitin var kölluð út kl. 21:10 vegna leitar að stúlku í Esju sem hafði verið saknað frá kl. 18:00. Stúlkan fannst áður en 10 björgunarmenn fóru úr húsi.
Sveitin var kölluð kl. 17:21 vegna leitar að bíl að Fjallabaki með 3 einstaklingum. Alls fóru 16 björgunarmenn af stað úr húsi ásamt 2 leitarhundum á fjórum bílum, 4 vélsleðum, 2 fjórhjólum, en 3 þeirra hugðust leita á gönguskíðum. Liðsauki var þegar mættur í hús þegar leit var afturkölluð kl. 21:33, en þá hafði síðasti einstaklingurinn fundist.
Sveitin sinnti gosgæslu og aðstoðaði 3 ferðalanga á gönguleiðinni úr Goðalandi að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi og naut til þess aðstoðar börgunarmanna frá öðrum sveitum sem leið áttu um gönguleiðina. Einnig komu undanfarar frá sveitinni með þyrlu ásamt öðrum undanförum af höfuðborgarsvæðinu. Flytja þurfti 2 ferðalangana með þyrlu á sjúkrahús í Reykjavík þar sem ekki var hægt að flyta þá á börum niður gönguleiðina. Björgunarmenn fylgdu þeim þriðja niður til Bása þaðan sem honum var ekiið til mót við sjúkrabíl.
Í kvöld var sveitin kölluð út til innanbæjarleitar. Fljótlega eftir að sveitn byrjaði á verkefnum sínum var leitin afturkölluð þar sem hinn týndi fannst heill á húfi. Alls tóku þátt 3 sérhæfðir leitarmenn, 1 leitarmaður með svæðisleitarhund og einn leitarmaður á fjórhjóli.
