
Sveitin var kölluð út kl. 16:49 vegna manns sem hrasaði og meiddist á fæti á Svínaskarðsvegi milli Móskarðshnúka og Skálafells. 5 undanfarar fóru úr húsi kl. 17:13 og stuttu síðar fór einn björgunarmaður á fjórhjóli úr húsi. 4 sveitir sóttu manninn, en veður er gott á svæðinu og engin hætta talin vera á ferðum.
Leit á Nesjavallavegi var haldið áfram, en sveitin sendi 3 björgunarmenn þrátt fyrir að fjöldi félaga voru bundnir vegna skátamóts. Maðurinn kom í leitirnar heill á húfi skömmu eftir hádegið. Alls tóku 23 sveitir þátt í leitinni, auk lögreglu og þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Sveitin var kölluð út kl. 20:52 til að koma fótbrotnum manni til aðstoðar í Esjunni. 3 undanfarar fóru úr húsi, en alls tóku 8 sveitir í aðgerðinni sem lauk kl: 23:10.
